♥ Just a little touch of star quality! ♥

25.11.2006 17:53:20 / 69ners

Meeeehh...

 

Daginn.

 

 



Ég hef aldrei verið svona pirruð á ævi minni. Gæti alveg myrt einhvern núna. Skil ekkert í þessu pirringskasti en ég er bara alveg brjáluð.

Fór í Bónus núna áðan og lenti á kassa þar sem einhver pólverjakelling var á. Sko, ég hef ekkert á móti þessu fólki en þegar það er að vinna á almenningsstöðum eins og Bónus eða einhverju álíka, þá á það að læra tungumálið sem heitir ÍSLENSKA!

Ok skiptir ekki, en svo er hún að afgreiða mig og pabba og segir ekki einu sinni “Góðan dag!” Það er nú minnsta sem afgreiðslufólk í Bónus getur gert. Ég ætti að vita, ég vinn þar! Helvítis sko. Allt í lagi, og svo bara “Tvei Potja..” og ég alveg.. “Huh?” Viss ekki að hún ætti við poka. Þannig ég var bara eitthvað “ööh já..” Svo á hún alltaf að segja hvað allt sem maður var að kaupa kostar. NEI HVAÐ GERIR ÞESSI PÓLVERJADJÖFULL!? Hún bara ætlar að taka kortið hans pabba og ég sagði bara “Bíddu.. hvað kostar þetta?” Og hún bendir á fokking skjáinn eins og ég eigi bara að segja sjálfri mér “Já þetta kostar víst 3.105..” Og já, ég man verðið af því að það tók mig alveg 30 sekúntur bara að lesa á þennan skjá.

Eftir það, gaf ég henni rosalega dauðalúkk og var svo að rífa kjaft við pabba útaf þessu.

Ég get gjörsamlega tjúllast við að sjá svona vinnusemi! Og svo eru krakkarnir sem ráða yfir okkur afgreiðslufólkinu alltaf að kvarta yfir að ná ekki sambandi við þessa pólverja. Afhverju þá í andskotanum að leyfa þeim að vinna þarna!?

 

 



Svo er verið að vinna að blokkinni minni. Guð minn góður. Pólverjar geta alveg stillt klukkuna sína á íslenskan tíma. Sko! Þeir koma hérna kl 9 á sínum tíma, 7 á okkar og byrja að bora og pússa og allt! Ég gæti orðið klikkuð!!!

 

 

 

Er farin .. bæbæ..

 

Agnes.. Úti..

 



 

                                                                    



Er að fara að syngja á Hótel Sögu á eftir og er í svo vondu skapi að ég nenni ekki. Meh, fæ samt 8000 kr fyrir það.. Það er kosturinn..

 



Þegar ég verð eldri, þá ætla ég að vinna að því að henda þeim í tunnur og út í sjó..

Nei kannski ekki alveg.. .Frekar í gámum og aftur heim..


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 16:32:37 / Ida

hallóó

Já góðan dag.. Þetta veður er að fara með mig en það er allt i lagi... Var að pæla að fara út á svona ofnfat og láta meget feiti og renna mer niður brekkuna en neinei ég þori þvi ekki :S:D Jæja er að pæla að setja nokkrar myndir herna fyrir neðan i bloggið frá þvi i gaggo eða Agnes þú veist hvað ég meina:D Verslunarmannahelgina:D

image

Vinsælu vifturnar sem við keiptum okkur.. Agnes var að sveifla sinni  þannig að maður þakkar fyrir að vera með augun og slíkt framan i sér hehe:D Þetta var einmitt þegar við vorum á brekkusöngnum ekki láta mig þurfa að syngja upphátt hehe :D góður tími;)

image

HAHAHA einmitt þegar gaurarnir fyrir ofan okkur voru svo hressir á brekkusöngnum að við bara tókum undir með þeim og tóku lika myndir af þeim svo það mátti ekki vanta myndir af okkur;):^)

image

Fyrir utan bústaðin hja okkur hahah Hundurinn sem Agnes gaf sykurpúða .. spurning hvort hann sé lifandi enþá humm?? AWWW sjaið löppina haha geggt bæklaður hvutti:D

image

Ætluðum að sofa i þessu tjaldi allan tíman vorum bunar að tjalda þvi eins og þið sjaið en við gerðum það aldrei:S utaf það bjuggu kankinur fyrir utan kofan eða bustaðin sem við vorum í:S

image

Agnes á þessu Crazy balli sem við fórum á með Land og synum á sem var reyndar frekar slapt.. Það besta var við það að við elskum þjóðhátiðar lagið þarna Lífið er yndislegt og herna við ætluðum að fara af ballinu herðu haldið þið ekki bara að hann tekur lagið þegar við erum að labba ut svo við tökum svakalegan sprett og hlustum á lagið og förum svo niðrí bæ:D

Svo er það hun Linda flutt til Noregs sakna henni:(:( en það er allt i lagi með hana og hun skemmtir sér svona rosalega svo þetta reddast Linda mín:*

image

Linda:*:*:*

herðu ég er þá bara farin:D

image

Ída og Anna

Ída out:*


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 08:56:00 / Ida

Já góðan daginn

Góðan dag... Sit hér í skolanum í photoshopi eða hvað það nu heitir að verða klikkuð á þessu verkefni en ja ég er frékar léleg að blogga eins of þið sjaið en hun Agnes stendur sig vel i þvi... Frétti einmitt að hun ætlaði að gefa ut blað það er frekar sniðugt ég get verið ljósmyndari... Jú einmitt þar sem jólin eru að koma þá sá ég helviti flott jóla tré uppí heiðmörk og langar frekar meget i það. Ef ég mundi fara og stela þvi kæmi þá löggan bara svígetíbúng á eftir mer og sektar mig.. ekki það að ég sé að pæla að fara með sög og taka það bara þú vest pæling????? Basshunter í gær og það var nu alveg crazy stuð eina sem mætti bæta er það að þessir verðir eru OF strangir ég þoli ekki svona rugl þetta er eins með tollverði... meina eins og í gær þá hoppaði gaur uppá svið herðu helvitis dyraverðirnir kyldu hann niður tröppurnar tíkur.. jæja nog komið og jaww enilega commentið með dyraverði;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2006 13:33:12 / 69ners

Kræst!

 


Moods

 

Góðan daginn!

Helvítis vesen. Ég er uppi í skóla í matsalnum og það var verið að heiðra Íris og Ragnar. Þau stóðu sig frábærlega í Killarney, Írlandi þegar þau tóku þátt í AEHT- keppninni. Ég er svo stolt og þau mega líka vera stolt af sér. Þau komu heim með tvenn gullverðlaun og tvö silfur, held ég. Frábær árangur! Núna er verið að taka viðtöl við þau og ég mæli eindregið með að fólk horfi á fréttirnar í kvöld. Það er nú ekkert grín að vera frægur á Íslandi. Ég ætti að þekkja það. Haha! Hér er meðfylgjandi mynd af Írisi og Ragnari.

 

Vá! Það er jarðskálfti bara á mínu borði. Þetta er heví skrýtið. Ég er örugglega að verða geðveik, vatnið er á fleygiferð og þetta er geðveikt óþægilegt. Og ótrúlega skrýtið! :-S Oook það er búið, Guði sé lof. Var að verða geðveik.

MoodsMoods

 

Ég er að drepast fyrir karlrembum í þessum skóla. Eins og í Félagsfræði. Hvað er með þessa karlmenn? Ég er að klikkast! Einn var til dæmis að segja núna að hann væri ekki hlynntur því að laun kvenna yrði hækkuð. Af því að þá myndu laun karlmanna yrðu lækkuð. Wtf!? Svona fólk á nú ekki skilið að vera andandi.

Maður nennir varla að vera í skóla lengur, alltof mikið að gerast hjá manni. Ég er að fara í píanópróf eftir 9 daga og það er svo heví mikið heimanám að ég dey bráðum..

You're dismissed...

Kveðja,
 Agnes....



Moods Moods



 




» 0 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 15:46:13 / 69ners

Eh savvy?!

LoveMeaningfulMeaningful

Sko, hvað er málið með að láta krakka æfa á hljóðfæri?! Persónulega finnst mér þetta algjört bull. Ég er að æfa söng og píanó, en það er búið að hóta mér að ef ég hætti í píanóinu, að þá verður ekki borgað fyrir söngnámið þannig að hvað fær maður út úr því að hætta? Ég er komin með svo mikið ógeð af píanóinu, að heyra þessa ógeðslegu hljóma alla daga. Er að fara að taka miðpróf 24. nóv, jájá, eftir rúma viku og ég er alls ekkert tilbúin. En spurningin er, er ég nokkuð tímann tilbúin fyrir þetta próf? Þetta er víst annað tækifærið mitt að taka prófið. Kannski þetta sé svona þrjú tækifæri og svo bara "Nei, við viljum ekki dæma þig!" Ef svo er, þá vil ég hætta við annað tækifærið og líka þriðja og hætta svo? Hvernig væri það?

Meaningful

Það er verið að halda krökkum í námi alla daga. Þú kemur heim úr skólanum um 4-5 leitið og hvað gerir þú? Já, þú ferð aftur í skólann. Heimalærdómur bíður eftir að pynta þig allan liðlangan daginn. Svo nærðu ekki að klára heimalærdóminn fyrir mat, ferð að borða og hvað gerir þú þá? Nei Guð, þarft ekki að hafa áhyggjur af hafa ekkert að gera af því að heimalærdómurin bíður með opna arma eftir þér. Og þegar þú ert loks búin/n að læra, hvað þá? Jájá, klukkan orðin svo margt að þú ert nánast rekin/n upp í rúm?
Eins og góðkunningi minn sagði, fólkið í gamla daga var að passa að krakkarnir í gamla daga myndu ekki skemmta sér, og þess vegna stofnuðu þau skólann. En hvernig áttu krakkarnir í gamla daga að skemmta sér? Sitja saman á bekk að kemba ull? Eða fara og týna gras? Hvað með að dorga niðri við höfnina, í von um að veiða pínu makríl sem þau gætu stolt farið með heim. En þegar þau koma heim, er makrílnum hent í ruslafötuna, þar sem foreldrunum fannst þetta ógeðfellt.

Hvað með það sem allir fullorðnir segja alltaf "Bestu árin eru unglingsárin"... Voru þau á einhverjum þegar þau sögðu þetta? Nei fyrirgefðu, þau lentu á besta tímanum. Flott föt, hippatímabilið þar sem þú gast reykt gras úti á götu og látið sem ekkert væri. Þetta hefði náttúrulega verið frábær tími til að vera í skólanum. Þú bara hendir maríújana í kennarann og hann reykir það, ef hann er að bögga þig. Kannski maður geri það við Ásgeir kennara? Nei fyrirgefið, hann er nú þegar á því ;)

En á mikilvægari nótum, með þennan pólska mann sem dó í nótt. "Umferðarráð hefur barist harkalega fyrir því að fá ljós." My ass sko, ljúgið aðeins meira að íslensku þjóðinni sem keyrir þarna í gegn á hverjum degi. Sé nú ekki betur en að þeir voru að bíða eftir banaslysi svo að þeir gætu sett upp þessi ljós. Hvað er að fólki? "Eitt banaslys núna, annað á morgun. Jess! Spörum peninginn. Fólkið skiptir ekki máli." Þeir hugsa svona, þetta helvítis ríka fólk sem skítur hreinlega peningum. Fá allt upp í hendurnar og eru svo helvíti heimsk. Æji kommon, gefið eitthvað af þessum peningum sem vaxa undir handakrikunum ykkar eins og svitafýla, í góðgerðarsamstarf eða eitthvað. Berjist til dæmis gegn gróðurhúsaáhrifum eða stríði.

PoliticalPoliticalPoliticalPoliticalPolitical

Ekki vera gráðug, heldur gáfuð.

En, á mikilvægari nótum, ég skemmti mér ágætlega um helgina. Var samt alveg að missa mig í þessari veiki víst. HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ ÞAÐ!? Ok, ég lít út fyrir að vera bitur, miðaldra kona með 20 ketti. *Note to self: Never again* Hvernig var helgin hjá fólkinu? Segið mér endilega, þar sem ég er að drepast úr spenningi við að vita.

 Agnes, out!


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 16:51:26 / Ida

Sælt verið fólkið hahaha

Erum við að tala um að það sé CRAZY veður uti eruð þið að grínast...

Í nott vaknaði ég við það að ég helt að gluggin væri að fjúka af..8|8| Beið alltaf eftir að heyra eithvað þvílik bangetty bang og þá er ég að tala um að ljósastaurinn skelli á gluggan eða járn að fjúka á gluggan eða eithvað þannig lagað...

Við erum að tala um að það er kominn snjór og ég á ekki góða úlpu til að vera í en þetta er allt i lagi þetta reddast allt samann.:!::!::!::!::!:

Get ekki beðið eftir að prófin séu búin því þá veit maður að jóli eru að koma:D:D:D:D:D:D:D:D:D

Agnes veik heim:whut::( og vonandi fer henni að batna þessari elsku:D

Planið í kvöld er að fara til Agnesar og bara hafa það rólegt þar sem hun á að vera bara chillingkongarnei sko:D:D:D:D:D:D:D

Ég og Sveinn fórum að boxa áðann í skólanum og ég bað hann að kyla mig i hendina EKKI fast heyrðu er ég ekki bara hérna sködduð i hendinni geðveikt marinn hehe:D.

Jæja allir að commenta um Veðrir á Íslandi:D tak man:*

Wááw en sætt:D


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 10:40:16 / 69ners

What do you mean I'm too drunk to be a Stormtrooper!?

Meaningful

Halló halló! Hvað segja allir?
Ég er svo sem ágæt.. Svolítið þreytt. Mætti víst of seint í íslenskutíma. 8|
Jollí sko! Ég á að skila einhverri dönskuritgerð sem hún lét okkur fá aftur, og ég er löngu búin að týna henni. Haha!:| Jébb, maður fylgist svo vel með í tíma! Það er víst eitthvað próf líka á morgun og ég þarf að klára heila dönskubók. Er hægt að segja hálfviti? Af því ég held það.

Ég og Ída munum fara til Bandaríkjanna um miðjan júní og koma heima um miðjan júlí. Eða þá bara fyrstu vikuna í júlí og koma heim síðasta daginn. HAHA. Vil eiginlega frekar fara í júlí svo ég geti unnið í júní... Meikar sens, ræt?

Það er rosalega lítið búið að vera að gerast. Er að æfa mig fyrir píanó-prófið og þarf að læra 8 texta. 3 fyrir helgina og 5 fyrir næsta mánudag. Þannig að það verður voða lítið að gerast hjá mér nema læra. Svo náttúrulega skólinn líka. Ég þarf að sleppa Myrkramessunni fyrir þetta. En meina, einhver skápahommi í þröngum fötum... Og þá er ég að tala um Jónsa í Svörtum Fötum.. Hræðilegur náungi sko. Ef þið horfið bara á hann...

Verð að fara.. held kannski áfram á eftir..


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 22:09:00 / Ida

Já Halló

Vil tileinka þessu bloggi Chelsea jiggidýjagg..

Jæja núna áðann var Tottenham að vinna Chelsea 2-1 fyrir Tottenham.

Þetta er annað skiptið sem Chelsea tapar í þessum riðli ;).

En þetta er samt svekkjandi:(

LONDON353.jpg

Chelsea að labba inná samt ekki í þessum leik;)

Jæja annas þessi helgi búin og hún var nú ágæt :D

Er einmitt að baka skínkuhorn og þau eru nátturulega brend eins og allt annað sem ég by til :^)

Hef nú annas voða fátt að segja verst að við Agnes séum ekki saman í skóla það mundi vera crazy

untitled.jpg

Agnes:D

Heyrðu jáww það er bara spurningin hvernig þetta er Björg komin með kærasta og það er hann Atli Kodak:D til lukku með það.. og Hann Elvar komin með kærustu og sú heppna er hún Eva til hamingju með það :D

Jæja ætla að fara að taka skínkuhornin ut haha þau eru alveg svört :O

Bið bara að heylsa:D

LONDON161.jpg


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.11.2006 14:07:31 / 69ners

Hellúúú!

Love

Ída, sorry með bloggið þitt. Varð að henda út þar sem það eyðilagði síðuna. Náði þessu aftur upp núna með hjálp Sóleyjar tölvusnillings. Haha!
Þú verður bara að blogga aftur. Það ætti ei að vera vandamál, eh?

Hvað segir fólk gott? Ég er ekki búin að blogga svo lengi að ég man varla hvernig þetta er :( En nú breytist allt því að það er heví mikið að gerast hjá mér og ég hef því tíma! Haha nei smá djók! Píanóprófið, æfingar fyrir tónleikana í vor, skólinn, kjörtímabilið og allt. Er kannski að fara að veiða bráðum sem verður heví næs. Að slaka á með fiskunum...
Reyndar í mínum huga;
Að veiða er að henda einhverjum þráð í vatnið, vona að einhver illalyktandi, ógeðslegur fiskur sé svo heimskur að bíta á, nota alla lífsins krafta í að draga hann upp á meðan fiskur berst fyrir sínu auma lífi og svo þegar þú loksins færð hann, er þetta smápjakkur sem þú þarft annaðhvort að henda út í aftur eða gefa fuglunum og alls konar óargadýrum í óbyggðum.
Annars þegar ég er að veiða, verð ég svo reið yfir að ná ekki fiski að ég get ekkert slakað á. Þannig ég gæti allt eins verið heima og rífast í Magnííí? Hver veit.. Kannski heilasellurnar manns séu bara að gera sitt síðasta?

Ég veit ekki hvernig ég á að lifa þessa helgi. Á víst að syngja fyrir fólk en maður er nú varla að gera það, þar sem ég er með hálsbólgu. Gisti hjá mömmu þessa helgi sem verður geðveikt stuð! Get ei beðið! Og tek fram, EKKI kaldhæðni eins og Sóley var að spyrja, hvíslandi í mitt litla, fagra eyra.

Ætla að hætta núna, alltof langt blogg að ég fæ liðagigt.

Úúú eitt áður en ég fer! Ég elska Hjört Atla Guðmundsson! :P Hann er víst formaður NMK.. Haha! Sexý mannfýla!

Agnes, farin!

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 04:21:59 / 69ners

I don't expect my love affairs to last for long..

12049.gif

Jæja, gellurnar bara komnar með síðu! Það er víst voða bleikt þema í gangi.
Ég og Ída erum já, búnar að búa til nýja síðu og mun hún verða flottari á næstu dögum!
Það er spjall hérna, munu koma myndir inná og allskonar gotterí!

Ég sit hér og get varla farið að sofa.. Ætla að reyna að loka augunum og við skulum sjá hvort eitthvað gerist. Áts, rak puttann í núna!

Góða nótt allir, skólinn í fyrramálið!


» 3 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
RSS tengill
Dagsetning
7. febrúar 2012